Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur smellpassað inn í rússneska boltann.
Hann hefur farið gríðarlega vel af stað með Rostov í rússnesku úrvalsdeildinni.
Sverrir kom til Rostov fyrr í sumar frá spænska liðinu Granada.
Hann hefur farið gríðarlega vel af stað með Rostov í rússnesku úrvalsdeildinni.
Sverrir kom til Rostov fyrr í sumar frá spænska liðinu Granada.
Síðan hann kom til liðsins hefur liðið aðeins fengið á sig þrjú mörk í deildinni og haldið fjórum sinnum hreinu í sjö leikjum.
Rostov hélt enn og aftur hreinu í kvöld, gegn Krasnodar í leik sem endaði með markalausu jafntefli.
Sverrir átti góðan leik og var valinn maður leiksins. Hann fékk stóran bikar í verðlaun eins og sjá má hér að neðan.
Þessi fer væntanlega beint upp á hillu!
Well done Sverrir Ingi Ingason, Man of the Match 🇮🇸👊🏆 pic.twitter.com/KLtwO2aF9t
— Total Football (@totalfl) August 20, 2017
Athugasemdir