Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. ágúst 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Sessegnon á óskalista Manchester United
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur áhuga á að fá Ryan Sessegnon í sínar raðir frá Fulham en þetta segja heimildir Sky Sports.

Hinn 17 ára gamli Sessegnon sló í gegn með Fulham í Championship deildinni á síðasta tímabili en Tottenham hefur einnig mikinn áhuga á honum.

Sessegnon getur leikið bæði sem vinstri bakvörður og á vinstri kantinum.

Sky segir að Manchester United ætli að lána Sessegnon aftur til Fulham ef hann fer til félagsins í sumar.

Hins vegar ku Fulham hafa lítinn áhuga á að selja Sessegnon. Í sumar gerði leikmaðurinn nýjan samning við félagið og það gæti orðið erfitt fyrir United að landa honum núna.
Athugasemdir
banner
banner