Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 21. ágúst 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Swansea byrjar að eyða Gylfa peningnum - Clucas á leiðinni
Mynd: Getty Images
Swansea er að hefjast handa við að eyða þeim 45 milljónum punda sem fengust fyrir Gylfa Þór Sigurðsson þegar hann fór til Everton í síðustu viku.

Swansea er við það að landa Sam Clucas miðjumanni Hull.

Hinn 26 ára gamli Clucas átti fína spretti með Hull í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hann náði ekki að forða félaginu frá falli.

Talið er að Swansea ætli að kaupa Clucas á 16,5 milljónir punda en gengið verður frá málunum í dag eða á morgun.

Clucas var sjálfur hvíldir um helgina þegar Hull mætti QPR í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner