Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. ágúst 2017 16:30
Magnús Már Einarsson
Arsenal vill fá Maríu
Mynd: Getty Images
Enska félagið Arsenal hefur áhuga á að fá Maríu Þórisdóttur í sínar raðir. Jærbladet í Noregi greinir frá þessu í dag.

María er dóttir Þóris Hergeirssonar sem þjálfara kvennalandslið Noregs í handbolta.

Móðir Maríu er frá Noregi og sjálf hefur María verið í norska landsliðinu.

Í sumar var María norska landsliðinu sem tók þátt á EM í Hollandi.

Hin 24 ára gamla María er á mála hjá Klepp í Noregi en nú eru ágætis líkur á að hún fari til Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner