Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. ágúst 2017 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Kristján Flóki fljótur að opna markareikinginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Sóknarmaðurinn Kristján Flóki Finnbogason var ekki lengi að opna markareikning sinn með norska 1. deildarliðinu Start.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í gær. Hann kom inn á sem varamaður þegar klukkutími var búinn af leiknum, sem var gegn Tromsdalen, en nokkrum mínútum síðar skoraði hann.

Svo sannarlega frábær byrjun hjá honum. Hér að neðan er myndband af markinu sem hann skoraði í gær.



Dýrastur í sögu FH
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, staðfesti það í dag að FH hefði aldrei fengið eins hátt kaupverð fyrir leikmann og þegar Flóki var seldur frá félaginu í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner