Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. ágúst 2017 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðlaugur Victor í liði vikunnar í Sviss
Guðlaugur Victor (hér til hægri).
Guðlaugur Victor (hér til hægri).
Mynd: KSÍ
Guðlaugur Victor Pálsson hefur farið vel af stað með Zürich í Sviss.

Hann lék um helgina allan leikinn þegar Zürich gerði markalaust jafntefli gegn Young Boys í toppslag í svissnensku úrvalsdeildinni.

Zürich er á toppnum í Sviss með 11 stig eftir fimm leiki.

Guðlaugur þótti standa sig mjög vel um helgina gegn ungu strákunum í Young Boys. Hann er í liði vikunnar!

Guðlaugur Victor er á sínu fyrsta tímabili í Sviss en hann kom til Zürich frá Esbjerg í sumar.

Hér að neðan er lið vikunnar.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner