Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. ágúst 2017 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martial: Pogba mun vinna Ballon d'Or á næstu fimm árum
Mynd: 101 great goals
Anthony Martial hefur gríðarlega mikla trú á liðsfélaga sínum hjá Manchester United, Paul Pogba.

Martial segir að Pogba sé besti miðjumaður í heimi. Hann segir einnig að Pogba muni vinna Ballon d'Or, verðlaunin sem veitt eru besta fótboltamanni heims, á næstu fimm árum.

„Við viljum vinna marga titla saman hjá Manchester United og við viljum líka vinna HM með Frakklandi," sagði Martial við MUTV.

„Ef hann (Pogba) heldur áfram að spila og bæta sig eins og hann hefur verið að gera, þá held ég að hann muni vinna Ballon d'Or verðlaunin á næstu fimm árum."

„Ég myndi segja að hann væri besti miðjumaður í heimi núna. Hann er enn ungur og getur bætt sig enn frekar."
Athugasemdir
banner
banner