Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. ágúst 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Juan Manuel Iturbe til Tijuana (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ferillinn er á niðurleið hjá Argentínumanninum Juan Manuel Iturbe. Hann var eitt sinn sagður vera "næsti Messi" en nú hefur hann verið lánaður til Tijuna, sem leikur í efstu deildinni í Mexíkó.

Iturbe kemur til Tijuana á láni frá Roma.

Tijuana þarf að kaupa Iturbe ef hann stendur sig vel. Tijuana þarf þá að borga Roma 5 milljónir evra fyrir hann.

Iturbe var lánaður til Bournemouth fyrir nokkru, en hann spilaði aðeins tvo leiki þar og fann sig engan veginn.

Nú fær hann tækifæri til að sanna sig, í deild þeirra bestu í Mexíkó.
Athugasemdir
banner
banner