Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 22. ágúst 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho sendir Fosu-Mensah SMS - Hringir stundum
Fosu-Mensah er í láni hjá Crystal Palace.
Fosu-Mensah er í láni hjá Crystal Palace.
Mynd: Getty Images
Timothy Fosu-Mensah hefur greint frá því að Jose Mourinho sé duglegur að senda sér SMS; stundum hringir hann.

Fosu-Mensah er þessa stundina í láni hjá Crystal Palace frá Manchester United. Mourinho, stjóri United, sá ekki pláss fyrir Hollendinginn í liðinu sínu og ákvað því að lána hann.

Mourinho er þó ekki búinn að gleyma Fosu-Mensah, en Mourinho er í stöðugu sambandi við leikmanninn unga.

„Hann sendir mér oft SMS og stundum hringir hann," sagði Fosu-Mensah við Manchester Evening News.

„Stundum hefur Rui Faria (aðstoðarmaður Mourinho) samband. Það er gott að þeir hafi samband vegna þess að ég er enn samningsbundinn Manchester United," sagði hann enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner