Jósef Kristinn fékk titilinn maður leiksins í 4-0 sigri Stjörnunnar á Fjölni í kvöld. Hann byrjaði viðtalið á að aðstoða fréttamann sem var að spá í hvernig ætti að byrja viðtalið.
"Á ekki bara að ýta á rauða takkann" - vel gert Jósef!
"Á ekki bara að ýta á rauða takkann" - vel gert Jósef!
Hann lét hrósið lítið hreyfa við sér.
"Ég hef átt betri leiki finnst mér, aðalmálið var að við áttum góðan leik. Mér fannst Fjölnismennirnir erfiðir, þeir fengu alveg færi á okkur við hefðum getað gefið þeim tvö mörk hérna í fyrri hálfleik".
Jósef er ekkert að skafa af markmiðunum í Garðabænum....
"Að sjálfsögðu erum við að stefna að meistaratitli eins og einhver fjögur eða fimm lið. Við ætlum að gera meira en okkar besta til að ná því!"
Nánar er rætt við Jósef í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir