„Þetta var fínn leikur. Ég hefði viljað vera með þægilegri stöðu í hálfleik því að við áttum að geta það en ég er ánægður með allt í leiknum," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 2-0 sigur á Grindavík í kvöld.
Valur skipti úr 3-5-2 yfir í 4-3-3 þegar korter var eftir en varnarmaðurinn Rasmus Christiansen kom þá inn á fyrir framherjann Patrick Pedersen í stöðunni 1-0.
„Það er stundum þannig í fótbolta að maður þarf að þétta sig. Allir eru þreyttir og þá þarf að þétta sig."
Einar Karl Ingvarsson skoraði bæði mörk Vals í dag með þrumuskotum.

Lestu um leikinn: Valur 2 - 0 Grindavík
„Ég sagði við hann í síðustu viku að nú þyrftum við fleiri mörk frá honum. Hann var kominn með eitt mark fyrir þennan leik en var búnn að skjóta mikið án þess að hitta markið. Þetta datt í dag, sem betur fer."
Athygli vakti að Valsmenn voru með tvo varamarkverði á bekknum í dag, þá Jón Frey Eyþórsson og Ásgeir Þór Magnússon.
„Við höfum verið í basli með varamarkmanninn. Hann hefur meitt sig og við þorðum ekki öðru en að hafa annan markmann,"sagði Óli.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir