Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 22. ágúst 2017 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David Luiz: Conte sagði mér að hlaupa mikið
Mynd: Getty Images
Brasilíski stuðboltinn David Luiz átti hörkuleik gegn Tottenham á sunnudaginn. Hann spilaði á miðjunni í leiknum.

Chelsea vann leikinn 2-1, en Luiz var í því hlutverki að spila fyrir framan þriggja manna varnarlínu Chelsea, Cesar Azpilicueta, Andreas Christensen og Antonio Rudiger og verja þá.

Það gekk upp hjá honum, en aðspurður hver skilaboðin frá Antonio Conte, stjóra Chelsea hefðu verið sagði hann: „Hlaupa, hlaupa mikið. Ég átti að passa að Eriksen og Alli fengu ekki pláss."

„Þeir spila alltaf mjög á milli varnar og miðju og ég átti að vera þarna til að loka bilinu og ekki skilja neitt pláss eftir fyrir þá."

„Við vorum mjög klókir í þessum leik," sagði Luiz einnig.
Athugasemdir
banner
banner