Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. ágúst 2017 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sanchez í læknisskoðun hjá Tottenham í dag
Mynd: Getty Images
Tottenham er að ganga frá kaupum á Davinson Sanchez, varnarmanni, Ajax á 42 milljónir punda.

Hann fer í læknisskoðun hjá Spurs í dag.

Sanchez verður fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Tottenham í sumar og jafnframt verður hann dýrastur í sögu félagsins.

Tottenham náði samkomulagi við Ajax síðastliðinn föstudag og hann verður líklega leikmaður Lundúnarliðsins í dag.

Ajax hagnast vel á sölunni á Sanchez því hann kom til félagsins frá Atlético Nacional á 3,8 milljónir punda fyrir einungis einu ári síðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner