Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. ágúst 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Muller: Þetta var svo heimskulegt
Nicolai Müller.
Nicolai Müller.
Mynd: Getty Images
Nicolai Muller, leikmaður Hamburger SV, er ekki sáttur með sjálfan sig eftir að hann meiddist þegar hann fagnaði marki.

Hann segir að það hafi verið heimskulegt hjá sér.

Meiðslin sem hann varð fyrir voru ekki smávægileg, hann sleit krossband og verður frá í sjö mánuði. Hann tók nokkra hringi og hoppaði síðan upp í loftið. Hann slasaði sig þegar hann lenti.

„Ég rann með hægri fótinn, lenti á hornfánanum og lagðist í grasið af sársauka," sagði Muller við þýska blaðið Bild.

„Ég varð fyrir hnémeiðslum, þetta var heimskulegt hjá mér."

Myndband af þessu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner