Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. ágúst 2017 06:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Middlesbrough hafnar tilboði Lille í Adama Traore
Adama Traore gæti yfirgefið Middlesbrough áður en glugginn lokar
Adama Traore gæti yfirgefið Middlesbrough áður en glugginn lokar
Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur hafnað tilboði Lille í spænska kantmanninn, Adama Traore. Tilboð Lille hljóðaði upp á 9 milljónir punda en Middlesbrough er talið vilja fá tæplega 14 milljónir punda fyrir Traore.

Middlesbrough er talið vera tilbúið að selja kappann en þeir vilja þó vera tilbúnir með einhvern til þess að fylla í skarð Traore. Þar hafa Joe Lolley, leikmaður Huddersfield, Marvin Johnson, leikmaður Oxford og Ryan Kent, leikmaður Liverpool, verið nefndir til sögunnar.

Traore spilaði 27 leiki fyrir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Honum tókst þó ekki að skora mark í þeim leikjum og lagði aðeins upp eitt mark.

Á þessari leiktíð hefur Traore bara komið við sögu í einum leik, gegn Burton Albion, og virðist hann ekki vera í plönum Garry Monk, stjóra Middlesbrough.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner