U18 ára landslið karla sigraði Slóvakíu örugglega 3-0 á æfingamóti í Tékklandi í dag.
Dagur Dan Þórhallsson skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik.
Ágúst Hlynsson bætti síðan við þriðja markinu undir lok leiksins.
Dagur Dan leikur með Gent í Belgíu en Ágúst er á mála hjá Norwich á Englandi.
Ísland tapaði 3-0 gegn heimamönnum Tékkum í gær en lokaleikur liðsins í riðlinum er svo gegn Úkraínu á föstudag.
Athugasemdir