Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 24. ágúst 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Craig Dawson framlengir samning sinn hjá West Brom
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Craig Dawson hefur skrifað undir nýjan samning við West Brom. Samningurinn gildir til 2020.

West Brom hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni, en Dawson hefur átt góða spretti í þessum fyrstu leikjum.

„Mér hefur alltaf liðið mjög vel hérna og ég er gríðarlega ánægður að hafa komist að samkomulagi," sagði Dawson.

Hinn 27 ára gamli Dawson kom til West Brom frá Rochdale árið 2010.

„Þetta hefur verið skemmtilegt ferðalag hingað til, en það er meira eftir hjá mér," sagði Dawson enn fremur.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner