Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. ágúst 2017 18:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Koeman á enn eftir að ákveða hvort Gylfi byrji í Króatíu
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Everton, er ekki enn búinn að taka ákvörðun um það hvort Gylfi Sigurðsson verði í byrjunarliði Everton gegn króatíska liðinu Hadjuk Split í Evrópudeildinni annað kvöld.

Gylfi flaug ásamt liðsfélögum sínum til Króatíu í dag.

Everton er í góðum málum eftir 2-0 sigur í fyrri leiknum, en flestir fjölmiðlar á Englandi spá því að Gylfi byrji leikinn á morgun.

Koeman á hins vegar eftir að ákveða sig.

„Ég þarf að taka ákvörðun," sagði Koeman við fjölmiðla í kvöld. „Hann spilaði á mánudaginn og við eigum eftir að ákveða hvort hann byrji leikinn eða komi aftur inn af bekknum."

„Við eigum eina æfingu eftir og síðan sjáum við til."

Gylfi kom inn sem varamaður á mánudaginn þegar Everton gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni en það var fyrsti leikur hans í búningi Everton.
Athugasemdir
banner
banner