Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 24. ágúst 2017 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Seri: Hef ekki spilað minn síðasta leik fyrir Nice
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn eftirsótti Jean Michel Seri hefur ekki sagt sitt síðasta með franska liðinu Nice.

Seri hefur verið sterklega orðaður við Barcelona.

Það er þó ekkert klárt í þeim efnum og leikmaðurinn segist sjálfur ánægður með lífið hjá Nice.

„Við munum sjá til með framtíð mína, en ég held að þetta hafi ekki verið minn síðast leikur með Nice," sagði Seri eftir tap Nice í Meistaradeildinni gegn Napoli á þriðjudag.

„Ef Barcelona vill fá mig, þá er það gott, en annars er ég mjög ánægður hérna í Nice," sagði Seri.

Barcelona þarf að borga 36 milljónir punda fyrir Seri.
Athugasemdir
banner
banner
banner