Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. ágúst 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stephen Kingsley til Hull City (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hull City hefur keypt skoska bakvörðinn Stephen Kingsley frá Swansea. Hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Hull.

Kaupverðið var ekki gefið upp þegar tilkynnt var um kaupin.

Kaupin voru staðfest í gær. Á sama tíma keypti Swansea hinn 26 ára gamla Sam Clucas frá Hull fyrir 16 milljónir punda.

Kingsley er bakvörður, en hann getur einnig spilað í miðri vörninni. Hann var ekki inn í myndinni hjá Paul Clement, stjóra Swansea, fyrir tímabilið, en hann spilaði 17 leiki fyrir Svanina í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa komið frá Falkirk árið 2014.

„Ég vonast til að spila fullt af keppnisleikjum," sagði Kingsley eftir að hafa undirritað samning hjá Hull í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner