Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 24. ágúst 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mun PSG nota Areola í skiptum fyrir Pepe Reina?
Mynd: Getty Images
Franska stórliðið er tilbúið að nota Alphonse Areola í skiptum fyrir Pepe Reina, hinn reynda markvörð Napoli.

Þessar fréttir koma nokkuð á óvart, en það var hinn virti blaðamaður Gianluca Di Marzio sem greindi fyrst frá því að PSG hefði áhuga að fá Reina. Di Marzio er mjög áreiðanlegur þegar kemur að fréttum sem varða ítalska boltann og hefur hann mjög oft rétt fyrir sér.

Sagan um að Reina væri á leið til PSG spratt hratt upp og fljótlega var Alphonse Areola, sem hefur varið mark Parísarliðsins í fyrstu leikjum tímabilsins nefndur í tengslum við þessi mögulegu félagaskipti.

Areola kom upp í gegnum akademíuna hjá PSG.

Hann gæti nú farið til Napoli, en talið er að PSG þurfi eitthvað að borga líka ef þeir ætla sér að fá Reina í markið.
Athugasemdir
banner