Jörgen Sveinn Þorvarðarson tekur við þjálfun kvennaliðs Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis út þessa leiktíð.
Þetta kemur fram hjá Austurfrétt.is í gærkvöldi.
Þetta kemur fram hjá Austurfrétt.is í gærkvöldi.
Sara Atladóttir, þjálfari liðsins, fór fyrr í fæðingarorlof en áætlað var og Jörgen mun þjálfa liðið í hennar stað.
Jörgen Sveinn, sem er 29 ára gamall, á að baki yfir 80 leiki með Hetti, Huginn og Spyrni á árunum 2003-2013. Þetta verður í fyrsta skipti sem hann þjálfar meistaraflokk.
Sara Atladóttir hefur stýrt liðinu í sumar, en hún á að eiga sitt fyrsta barn á næstu vikum. Hún ætlaði sér að klára tímabilið en eftir læknisskoðun í síðustu viku varð ljóst að það gengi ekki eftir. Hennar síðasti leikur var markalaust jafntefli gegn Einherja á föstudagskvöld.
Fjarðab/Höttur/Leiknir er í 2. deild kvenna. Þær eiga þrjá leiki eftir, en þær eru í sjöunda sæti af níu liðum. Þær eru með 15 stig.
Athugasemdir