Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. ágúst 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Alexis Sanchez klár fyrir leik Arsenal gegn Liverpool
Alexis á æfingu hjá Arsenal.
Alexis á æfingu hjá Arsenal.
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez er í klár í slaginn fyrir leik Arsenal gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Alexis á ár eftir af samningi sínum hjá Arsenal en hann hefur ítrekað verið orðaður við brottför frá félaginu í sumar.

Leikmaðurinn hefur ekkert spilað hingað til á tímabilinu en hann gæti spilað á sunnudag.

„Sanchez hefur lagt hart að sér til að koma til baka og hann er klár á ný. Hann er mjög einbeittur og gefur gjörsamlega allt. Hann elskar svo mikið að spila," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal en ekki er ljóst hvort Alexis fari beint í byrjunarliðið.

„Hann virðist vera tilbúinn. Hann hefur ekki spilað í langan tíma svo ég á eftir að ákveða hvað ég geri með hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner