Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 24. ágúst 2017 11:11
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari 2. flokks ÍBV fékk sex leikja bann fyrir að leggja hendur á leikmann Vals
Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Michael Edward White, þjálfari 2. flokks ÍBV, var dæmdur í sex leikja bann af aganefnd KSÍ eftir að hafa lagt hendur á leikmann Vals í viðureign liðanna í 2. flokki þann 18. ágúst síðastliðinn.

Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum en ÍBV fékk 15 þúsund króna sekt vegna atviksins.

Samkvæmt heimildarmanni Fótbolta.net sauð upp úr milli tveggja leikmanna úr sitthvoru liðinu. White mætti á vettvang og eftir einhver orðaskipti lagði hann hendur á háls leikmanns Vals og sló hann svo.

„Hann hefur viðurkennt að hann hafi gert mistök og gerði það við alla aðila strax eftir leik. Þetta er eitthvað sem á ekki að gerast. Hann veit það best sjálfur, menn gera mistök. Hann hefur beðið afsökunar og tekur út sína refsingu," segir Páll Hjarðar, formaður ÍBV.

Páll getur ekki sagt til um hvort frekari eftirmálar verði af atvikinu. Fótbolti.net hefur ekki upplýsingar um hvort Valur eða foreldrar leikmannsins ætli að bregðast frekar við en einhver óánægja er meðal Valsmanna um að leikbannið hafi ekki verið lengra.

Í umræddum leik, sem Valur vann 1-0, spiluðu strákar fæddir 1998-2003.
Athugasemdir
banner
banner
banner