Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 14. september 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marcelo framlengir við Real Madrid
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn hæfileikaríki, Marcelo, hefur framlengt samning sinn við Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid.

Samningur hans gildir nú til ársins 2022.

Hinn 29 Marcelo hefur verið hjá Real Madrid frá 2006, en þá kom hann frá Fluminense í heimalandinu, Brasilíu. Marcelo hefur síðan þá spilað meira en 400 leiki fyrir Real Madrid og skorað 28 mörk.

Frá því hann kom til Real hefur hann unnið Meistaradeildina þrisvar og spænsku úrvalsdeildina fjórum sinnum.

Hann hefur verið lykilmaður í liði Real Madrid undanfarin ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner