Argentíski sóknarmaðurinn Gonzalo Higuain mun væntanlega sleppa við refsingu frá UEFA eftir hegðun sína í leik Juventus gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn síðasta.
Higuain var tekinn af velli undir lok leiksins, sem Juventus tapaði 3-0.
Higuain var tekinn af velli undir lok leiksins, sem Juventus tapaði 3-0.
Hann var ekkert sérlega ánægður með það, en hann fékk að heyra það frá stuðningsmönnum Barcelona. Higuain, sem er fyrrum leikmaður Real Madrid, brást illa við því.
Hann hrópaði blótsyrðum í átt að stuðningsmönnum Barcelona áður en hann sendi þeim fingurinn.
Talið var að UEFA myndi skoða málið, en samkvæmt Goal.com ætla þeir ekki að gera það. Higuain sleppur líklega í þetta skiptið.
Athugasemdir