Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 20. september 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
McTominay vonast til að feta í fótspor Rashford og Lingard
McTominay spilaði nokkra leiki á undirbúningstímabilinu.
McTominay spilaði nokkra leiki á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Getty Images
Scott McTominay vonast til að feta í fótspor leikmanna eins og Marcus Rashford og Jesse Lingard. Honum dreymir um að vinna sér sæti í aðalliði Manchester United.

McTominay, sem er tvítugur, lék sinn fyrsta leik með aðalliði United undir lok síðasta tímabils.

Hann spilaði nokkra leiki á undirbúningstímabilinu, en hann hefur ekkert spilað síðan alvöru tímabilið hófst.

„Það er draumur að rætast að spila með aðalliðinu, að spila gegn liðum eins og Real Madrid," sagði McTominay.

„En þú vilt alltaf meira og ég vil spila í stóru leikjunum, í keppnisleikjunum og gera mitt besta."

Manchester United mætir Burton Albion í enska deildabikarnum í dag og það er aldrei að vita nema McTominay fái tækifæri þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner