Eden Hazard, leikmaður Chelsea, hefur útilokað það að hann muni spila með Paris Saint-Germain í framtíðinni.
Hazard hefur verið sterklega orðaður við PSG undanfarin ár.
Hann er hins vegar ekki á leið þangað. Hann mun nefnilega, ef hann fer í franska boltann, fara aftur til Lille, en þar spilaði hann áður en hann gekk í raðir Chelsea árið 2012.

„Núna vilja bestu leikmennirnir spila í frönsku úrvalsdeildinni og það er hið besta mál. En ef ég fer þangað aftur þá mun ég spila fyrir Lille - það er mitt félag," sagði Hazard við SFR Sport.
„Ég á enn mikið eftir af ferlinum," sagði hann enn fremur.
Athugasemdir