Nú á dögunum gáfu nokkrir galvaskir Tottenham aðdáendur út tónlistarmyndband við lagið "Tottenham For Life" en það er einmitt ábreiða af laginu "Circle of Life" sem að flestir kannast við úr stórmyndinni Lion King.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum en óhætt er að segja að það hafi ekki fengið góð vibrögð. Framleiðendur myndbandsins hafa brugðist við gagnrýnisröddum og sagt að lagið hafi verið gert á léttu nótunum og að fólk ætti ekki að taka því of alvarlega.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
What. The. Fucking. Fuck. pic.twitter.com/lLFUtbOSSS
— Nooruddean (@BeardedGenius) September 19, 2017
Athugasemdir