Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 19. september 2017 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmenn Barcelona í bolum til heiðurs Dembele
Dembele verður frá út árið.
Dembele verður frá út árið.
Mynd: Getty Images
Barcelona sigraði Eibar örugglega í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, niðurstaðan var 6-1 sigur Börsunga.

Lionel Messi skoraði fernu fyrir Barcelona í leiknum.

Barcelona spilaði án Ousmane Dembele í leiknum, en hann meiddist í síðasta leik gegn Getafe. Það var hans fyrsti byrjunarliðsleikur í spænsku úrvalsdeildinni, en hann kom frá Borussia Dortmund fyrir metupphæð í sumar. Hann átti að fylla skarð Neymar.

Dembele fór meiddur af velli eftir 29 mínútur gegn Getafe, en meiðslin eru alvarleg og hann verður frá út árið. Hann fór í vel heppnaða aðgerð í Finnlandi í dag, en þrátt fyrir aðgerðin hafi verið vel heppnuð, þá verður Dembele frá í langan tíma.

Leikmenn Barcelona mættu í bolum merktum Demebele fyrir leikinn í kvöld. Á þeim stóð "Courage Dembele" eða "Hugrekki Dembele".



Athugasemdir
banner
banner
banner