Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 20. september 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Dómarinn átti stóran þátt í marki Swansea
Ayew þakkaði fyrir hjálpina frá dómaranum.
Ayew þakkaði fyrir hjálpina frá dómaranum.
Mynd: Getty Images
Jón Daði Böðvarsson og félagar hans í Reading voru allt annað en sáttir með annað markið sem Swansea skoraði í 2-0 sigri í leik liðanna í enska deildabikarnum í gær.

Jón Daði kom inn á sem varamaður á 74. mínútu í leiknum en Axel Óskar Andrésson var ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.

Reading var að sækja í leit að jöfnunarmarki á 83. mínútu í gærkvöldi þegar Swansea náði skyndisókn og Jordan Ayew skoraði annað markið.

Markið var óvenjulegt því Andy Davies, dómari leiksins, átti stóran þátt í því.

Reading var í sókn þegar boltinn fór í Davies dómara. Leroy Fer náði boltanum og sendi fram á Ayew sem skoraði.

Smelltu hér til að sjá atvikið
Athugasemdir
banner
banner