Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. september 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Benzema framlengir við Real - Kostar núna milljarð evra
Benzema fagnar með liðsfélögunum.
Benzema fagnar með liðsfélögunum.
Mynd: Getty Images
Karim Benzema hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Real Madrid.

Franski framherjinn er nú samningsbundinn Real þar til 30. júní árið 2021.

Hinn 29 ára gamli Benzema hefur af og til verið orðaður við önnur félög undanfarin ár en hann er ekki að fara neitt.

Riftunarverðið í nýjum samningi Benzema hljóðar upp á einn milljarð evra. Það er því dýrt að kaupa hann.

Það er nóg að gera á skrifstofum Real Madrid þessa dagana en þeir Marcelo, Isco og Dani Carvajal hafa allir framlengt samninga sína að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner