Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. september 2017 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lukaku: Stuðningsmenn meina vel með söngnum
Mynd: Getty Images
Söngvar Manchester United um meintan stóran getnaðarlim Romelu Lukaku hafa vakið óánægju innan Kick It Out samtakanna, sem berjast gegn kynþáttafordómum í knattspyrnu.

Lukaku segist skilja að stuðningsmenn meini vel með söngnum, en hvetur þá um leið til að hætta og finna nýjan söng.

„Ég hef fundið fyrir gríðarlega miklum stuðningi frá komu minni til United," sagði Lukaku.

„Stuðningsmennirnir meintu vel með söngvunum en nú er kominn tími til að halda áfram og breyta til. #respecteachother."

Knattspyrnufélagið sjálft er búið að banna sönginn, sem og aðra söngva sem sýna kynþáttafordóma eða óheilbrigðar staðalímyndir.
Athugasemdir
banner
banner