Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. september 2017 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Szczesny skaut Wilshere í kaf á Instagram
Wilshere og Szczesny á góðum degi.
Wilshere og Szczesny á góðum degi.
Mynd: Getty Images
Juventus keypti Wojciech Szczesny af Arsenal í sumar og spilar Pólverjinn reglulega þegar Massimiliano Allegri telur ráðlegt að hvíla hinn næstum fertuga Gianluigi Buffon.

Jack Wilshere er hins vegar enn hjá Arsenal og hefur ekki náð sér á strik undanfarin tímabil vegna meiðsla og ýmissa vandamála, en hann fékk þó að spila reglulega með Bournemouth á síðasta tímabili.

Wilshere birti gamla mynd af sér á Instagram og skrifaði í lýsinguna að hann saknaði þess að búa með hinum „klikkaða" Wojciech Szczesny.

Szczesny líkaði við myndina og skrifaði ummæli undir sem hann eyddi síðar útaf, enda undir beltisstað því Wilshere fær lítið sem ekkert að spila hjá Arsenal.

„Er þessi mynd frá því þegar þú varst ennþá góður í fótbolta?" skrifaði Szczesny undir myndina.



Athugasemdir
banner
banner
banner