Villareal hefur spilað skemmtilegan bolta og er nú í þriðja sæti í La Liga á Spáni og er líklegt til að spila í Meistaradeildinni að ári. Hinsvegar er saga liðsins mjög svo áhugaverð. Hér að neðan má sjá grein um þetta lið en þessi grein er byggð á pistli sem Sid Lowe gerði í mars tímariti World Soccer.
Lið frá smábæ sem byggt er úr rústum.
Þegar Fernando Roig keypti meirihlutann í Villareal í maí árið 1997 hélt fólk að hann væri orðinn ruglaður. Þegar að hann sagðist svo ætla gera liðið að fyrstu deildarliði héldu allir að hann hefði endanlega misst vitið. Villareal var á þessum tíma í annari deildinni, hafði aðeins þrjá starfsmenn, enga sögu og það sem meira var, El Madrigal heimavöllur liðsins tók aðeins 3500 manns í sæti. Villareal hafði verið í skugganum á nágrannaliðunum Valencia, Levante, Hercules, Elche og jafnvel Castellon en Roig sagði að liði myndi síðar verða eitt það besta á Spáni.
Villareal er í raun aðeins smáþorp á Spáni með um 40 þúsund íbúa sem verður að teljast mjög lítið. Borgin er ekki einu sinni á öllum landakortum af Spáni og þá er aðeins eitt hótel í borginni. Fernando Roig vissi hvað hann var að gera en fjölskyldan hans á stóru postulínsverksmiðjuna Pamesa. Paco bróðir Fernando Roig var eitt sinn stór hluthafi og forseti hjá grönnum Villareal í Valencia. Juan annar bróðir Fernando Roig á Mercadona matvöruverslunarkeðjuna á Spáni og hann gerði körfuboltaliðið Pamesa frá Valencia að góðu liði upp úr rústum líkt og Fernando Roig hefur gert með Villareal.
Það var hinsvegar munur á starfi Juan og Fernando Roig því Villareal gat verið með unglingastarf en ekki körfuboltalið Pamesa. Fernando Roig sagði ,,Akademíur fyrir unglinga virka ekki í körfubolta því spænskir krakkar eru ekki nógu góðir, en í fótbolta eru þeir það."
Öflugt unglingastarf skilar sínu:
Villareal tók þá stefnu að byggja upp gott unglingastarf og var það
Villareal byrjar svo sannarlega á grunninum því að yngri lið félagsins eru látin spila svipaðan fótbolta og aðalliðið gerir. Paquito sagði ,,Ég vil ekki monta mig að því en við viljum að leikmenn okkar fari vel með boltann."
Akademía Villareal byrjaði þegar að Fernando Roig kepti risaland sem á var appelsínuakur og breytti því í akademíu fyrir dágóða fúlgu. Villareal hefur nú 700 börn í akademíu sinni og eru 25 þeirra í unglingalandsliðum. Eða eins og Juan Carlos Garrido í akademíunni bendir á ,,Í U-16 ára landsliðum höfum við jafnmarga leikmenn og Barcelona og Real Madrid."
Eftir þrjú ár vill Fernando Roig að átta leikmenn úr akademíunni verði komnir í aðalliðið og nú þegar eru nokkrir leikmenn farnir að banka á dyrnar þar. Hinsvegar er ávöxtur unglingastarfsins hjá Villareal ekki ennþá farinn að skila sér að fullu enda ekki mörg ár síðan að akademían var stofnuð. Paquito segir það hafa verið gott fyrir liðið að fara upp um deild árið 1999 og falla aftur því þá opnuðust augu manna hjá liðinu að þeir yrðu að kaupa leikmenn og fá svo unga menn úr akademíunni síðar meir.
Fernando Roig stækkaði völlinn hjá Villareal eftir fallið aftur í aðra deild og nú komist 23 þúsund manns fyrir á El Madrigal en reyndar er ekki alltaf fullt hús á leikjum liðsins. Eftir fallið byggði Villareal upp sterkt lið og grannarnir í Valencia voru hjálpsamir og lánuðu þeim góða leikmenn og þeirra á meðal voru Miguel Angel Angulo og David Albelda núverandi fyrirliði Valencia.
Villareal komst aftur upp og með peningum Fernando Roig gat liðið boðið leikmönnum betri laun heldur en önnur lið í svipaðri stöðu. Varnarmaðurinn Rodolfo Arrubarrena frá Argentínu telur þetta mikinn kost ,,Við eru heppnir því við fáum alltaf borgað á réttum tíma." Þetta hljómar kannski ekkert alltof merkilega en staðreyndin er sú að margir leikmenn á Spáni geta ekki sagt það sama og Arrubarrena um launin sín.
Fjöldakaup frá Argentínu:
Villareal hefur gengið vel á félagaskiptamarkaðnum og þá sérstaklega í Suður-Ameríku, nánar tiltekið í Argentínu. Jose Manuel Llaneza fulltrúi Villareal var maðurinn sem fékk fyrsta Argentínumanninn til liðsins árið 1998 en það var Walter Gaitan. Síðan þá hafa alls 13 Argentínumenn leikið með Villareal og liðið átti fleiri menn í seinasta landsliðshópi Argentínu en nokkurt annað lið.
Nú hefur Villareal 6 leikmenn frá Argentínu innan sinna raða og einnig Úrúgvæann Diego Forlan sem gerði það gott í Argentínu á sínum tíma. Liðið einnig með þjálfara frá Chile, Manuel Pellegrini sem þjálfaði í Argentínu á sínum tíma.
Það er því enginn tilviljun að Villareal er uppáhaldslið margra Argentínumanna á Spáni. Liðið hefur þó gert mistök í leikmannakaupum frá Argentínu og dæmi um það er framherjnn Martin Palermo sem gekk illa að aðlagast og eftir dvöl hjá öðrum liðum á Spáni er hann nú farinn heim með skottið á milli lappana. Hann náði þó að skora á móti FH þegar liðin mættust í Inter-Toto keppninni árið 2002!
Títtnefndur Fernando Roig segir ,,Af hverju fáum við Argentínumenn? Af því að við getum það. Við getum ekki fengið spænskan framherja en við getum fengið argentískan. Þeir eru ódýrari.
Argentínskur matur á föstudögum:
Villareal passar líka upp á að öllum líði vel hjá félaginu og til dæmis fer liðið alltaf saman eftir æfingar á föstudögum og fær sér argentínskan grillmat og spænst vín að hætti hússin. Liðið er til dæmis ekki ósvipað liði Charlton á Englandi en mikil fjölskyldustemming ríkir hjá Villareal.
Liðið fær það besta út úr öllum og dæmi um það er Juan Roman Riquelme sem að náði aldrei að finna sig hjá Barcelona. Hann hefur nú verið í láni hjá Villareal undanfarin tvö ár og hefur hann stjórnað spili liðsins á þessari leiktíð og lagt upp fjöldan allan af mörkum. Þá hefur Diego Forlan sprungið út eftir misheppnaða dvöl hjá Manchester United og er hann nú jafn Samuel Eto'o sem markahæsti maðurinn á Spáni.
Sama hvernig tímabilið endar hjá Villareal þá hefur þetta lið náð frábærum árangri og það er ótrúlegt að hugsa til þess hvar liðið stendur í dag miðað við hvar það var fyrir átta árum síðan. Í vetur hafa "Gulu Kafbátarnir" eins og Villareal eru oft kallaðir skemmt áhorfendum með frábærum léttleikandi fótbolta og hefur liðið skorað næstflest mörkin í spænsku deildinni á tímabilinu.





