Leicester City fékk Liverpool í heimsókn í síðdegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Liverpool sótti þrjú stig á King Power völlinn í Leicester, en þeir Salah, Coutinho og Henderson skoruðu mörk Liverpool í leiknum, Okazaki og Vardy sáu um markaskorun heimamanna.
Philippe Coutinho átti heldur betur góðan leik í dag, hann lagði upp fyrsta markið og skoraði annað markið beint úr aukaspyrnu, hann var valinn maður leiksins hjá Sky Sports.
Hjá Leicester var það Jamie Vardy sem stóð sig best, hann skoraði seinna mark liðsins og fékk vítaspyrnu sem hann misnotaði.
Einkunnir Leicester City
Schmeichel (6), Simpson (6), Morgan (6), Maguire (7), Chilwell (7), Albrighton (6), Ndidi (6), King (6), Mahrez (5), Vardy (8), Okazaki (7)
Einkunnir Liverpool
Mignolet (7), Gomez (6), Matip (6), Lovren (6), Moreno (6), Wijnaldum (6), Henderson (8), Can (7), Salah (7), Coutinho (9), Firmino (7)
Maður leiksins: Coutinho (9)
Athugasemdir