Montpellier 0-0 Paris Saint Germain
Paris Saint Germain heimsótti Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni fyrr í dag, niðurstaðan þar var markalaust jafntefli.
Dýrasti leikmaður heims, Neymar var hvíldur í dag, ekki var nein áhætta tekin með hann en hann var tæpur fyrir leikinn.
Parísarliðið hefur farið frábærlega á stað á þessu tímabili og hafði fyrir leikinn í dag unnið alla sex leiki sína í deildinni, þeir eru nú með 19 stig, stigi meira en Mónakó.
Næsti leikur Paris Saint Germain er gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn.
Athugasemdir