Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. september 2017 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Marco Silva: Þegar þú hefur trúna þá getur allt gerst
Mynd: Getty Images
Portúgalinn Marco Silva hefur verið að gera það gott í ensku úrvalsdeildinni frá því að hann kom í deildina í janúar.

Hann færði sig frá Hull City til Watford í sumar þar sem hann hefur verið eins og áður segir verið að gera góða hluti, þeir sigruðu Swansea í gær.

„Ég er mjög ánægður með niðurstöðuna í dag (gær)," sagði Silva. „Við gerðum vel fyrstu 30-40 mínúturnar, við fengum tækifæri til að klára leikinn en Swansea brást við. Þeir breyttu til hjá sér í hálfleik og mættu mjög sterkir til leiks fyrstu 25 mínúturnar í seinni hálfleik."

„Við brugðumst við því og gerðum breytingar og skoruðum eitt mark, það er mikilvægt að leikmennirnir misstu ekki einbeitingu og héldu áfram að trúa. Þegar þú hefur trúna þá getur allt gerst," sagði Marco Silva.

Watford er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 11 stig eftir fyrstu sex umferðirnar.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner