Sadio Mane gat ekki spilað með Liverpool gegn Leicester í gær í leik sem Liverpool vann að lokum 3-2.
Mane var að klára þriggja leikja bannið sem hann fékk fyrir að fara með takkana í andlit markvarðarins Ederson í leik gegn Manchester City á dögunum og gat því ekki spilað í gær.
Mane var að klára þriggja leikja bannið sem hann fékk fyrir að fara með takkana í andlit markvarðarins Ederson í leik gegn Manchester City á dögunum og gat því ekki spilað í gær.
Mane fór ekki með liðsfélögum sínum á King Power Leikvanginn.
Hann var þess í stað heima og fór í verslunarleiðangur í verslunarkeðjunni Asda.
Þar hitti spenntur aðdáandi hann. Aðdáandinn vildi fá mynd og lét Mane fá ungabarn sitt og tók þessa mjög svo skemmtilegu mynd sem sjá má hér að neðan.
Just in the Asda Hun pic.twitter.com/V8TyWFQNun
— Belinda McEyebrow © (@PissOffHon) September 23, 2017
Athugasemdir