„Þetta leit nú ekki vel út fyrir nokkrum vikum síðan, en það er gott að ná að halda okkur uppi," sagði Birnir Snær Ingason, leikmaður Fjölnis, í viðtali eftir 2-2 jafntefli gegn KR í dag.
Eftir þennan leik í dag er það ljóst að Fjölnir mun spila í deild þeirra bestu þegar næsta tímabil gengur í garð.
Eftir þennan leik í dag er það ljóst að Fjölnir mun spila í deild þeirra bestu þegar næsta tímabil gengur í garð.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 2 KR
Birnir átti fínan leik í dag, en er hann ekki sérstaklega sáttur með frammistöðu sína heilt yfir í sumar.
„Ég er ekki alveg nógu sáttur með sumarið heilt yfir," sagði hann þegar hann var spurður út í frammistöðu sína. „Ég hef verið að stíga upp í síðustu leikjum og ég er ágætlega sáttur með það, ég verð að byggja á þessu fyrir næsta tímabil."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir