Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 25. september 2017 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Janssen: Félagsskiptin til Fenerbahce björguðu mér
Mynd: Getty Images
Vincent Janssen var keyptur til Tottenham fyrir um 18 milljónir punda síðasta sumar.

Hollendingnum tókst ekki að fóta sig í ensku deildinni og var því lánaður út til Fenerbahce í sumar.

„Félagsskiptin til Fenerbahce björguðu mér. Mig langar ekki til að tala um Spurs, en ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að fara út á láni. Það er frábært að fá spilatíma," sagði Janssen, sem hefur verið að standa sig vel í Tyrklandi.

Mauricio Pochettino fékk spænska sóknarmanninn Fernando Llorente til Tottenham í sumar, og augljóst að krafta Janssen var ekki þarfnast.
Athugasemdir
banner
banner