Víglundur Páll Einarsson hefur látið af störfum sem þjálfari Einherja á Vopnafirði.
Víglundur þjálfaði Einherja í sumar og spilaði einnig fimmtán leiki í vörn liðsins.
Víglundur þjálfaði Einherja í sumar og spilaði einnig fimmtán leiki í vörn liðsins.
Einherji endaði í 6. sæti af 10 liðum í 3. deildinni í sumar en liðið fékk 25 stig.
Víglundur Páll þjálfaði einnig Einherja frá 2013 til 2015 en liðið fór upp úr 4. deildinni árið 2013 undir hans stjórn.
Í fyrra þjálfaði Víglundur Fjarðabyggð í Inkasso-deildinni áður en hann sneri aftur á Vopnafjörð síðastliðinn vetur.
Athugasemdir