Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. september 2017 16:30
Magnús Már Einarsson
Samúel Kári maður leiksins hjá Valerenga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 árs landsliðsmaðurinn Samúel Kári Friðjónsson var valinn maður leiksins hjá Verdens Gang í leik Valerenga og Brann í gær.

Valerenga fór með 2-1 sigur af hólmi en Samúel Kári skoraði fyrra mark liðsins.

Samúel Kári sneri aftur á fótboltavöllinn í sumar eftir að hafa verið frá keppni í um það bil ár vegna hnémeiðsla.

Undanfarnar vikur hefur Samúel leikið vel með Valerenga en löng innköst hans hafa vakið sérstaka athygli í leikjum liðsins.
Athugasemdir
banner
banner