Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. september 2017 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino án lykilmanna: Fer ekki að væla þó mig vanti menn
Mynd: Getty Images
Tottenham verður án Christian Eriksen í meistaradeildarleiknum gegn Apoel Nicosia í Kýpur á morgun.

Auk hans eru Moussa Dembele, Danny Rose, Victor Wanyama og Erik Lamela frá vegna meiðsla.

Þá verða Jan Vertonghen og Dele Alli ekki heldur í hóp vegna leikbanns.

„Það er aldrei afsökun að tapa vegna meiðsla. Christian er mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur, það er satt að við munum sakna hans, en við þurfum að líta áfram og finna leið til að spila vel og vinna án hans," sagði Pochettino.

„Við treystum því að aðrir leikmenn geti leyst þær stöður sem vantar leikmenn í vel af hólmi. Ég er ekki stjóri sem fer að væla þó mig vanti ákveðna leikmenn.

„Þetta snýst um leikmannahópinn, heildina, liðið, og við erum með mjög sterkt lið þó einhverjir leikmenn geti ekki spilað."

Athugasemdir
banner
banner