„Þetta var klikkaður leikur," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 1-1 jafntefli gegn Spartak Moskvu í kvöld.
Liverpool hefur aðeins tvö stig eftir fyrstu tvo leiki sína í Meistaradeildinni.
Liverpool hefur aðeins tvö stig eftir fyrstu tvo leiki sína í Meistaradeildinni.
„Að skapa öll þessi færi og skora bara eitt mark finnst mér mikil meðalmennska," sagði Klopp.
„Hvað get ég sagt? Við sköpuðum, sköpuðum og sköpuðum. Hvað er aðalmálið í þessari gagnrýni? Við reyndum allt sem við gátum. Frammistaðan var mjö góð."
„Við verðum að vera betri í því að klára færin okkar, 100%. Við verðum að halda áfram að reyna."
Athugasemdir