Danny Rose og Erik Lamela eru báðir byrjaðir að æfa með Tottenham á nýjan leik eftir langa fjarveru.
Hinn 25 ára gamli Lamela hefur ekki spilað í heilt ár vegna meiðsla á mjöðm.
Vinstri bakvörðurinn Rose hefur verið frá keppni síðan í lok janúar vegna meiðsla á hné.
Hinn 25 ára gamli Lamela hefur ekki spilað í heilt ár vegna meiðsla á mjöðm.
Vinstri bakvörðurinn Rose hefur verið frá keppni síðan í lok janúar vegna meiðsla á hné.
Rose vakti athygli í sumar þegar hann kvartaði yfir lélegum launum hjá Tottenham og lýsti yfir óánægju sini með leikmannakaup liðsins.
Rose baðst afsökunar í kjölfarið en það gæti orðið erfitt fyrir hann að vinna sér aftur sæti í byrjunarliðinu eftir góða frammistöðu Ben Davies.
Athugasemdir