Mjög svo athyglisvert atvik átti sér stað í leik Manchester City og Napoli í kvöld þegar dómarinn flautaði til hálfleiks.
Kevin de Bruyne, sem var öflugur í kvöld, vildi fá að ræða við dómara leiksins áður en hann fór inn í búningsklefa.
Liðsfélagar hans, David Silva og Fernandinho, komu í veg fyrir að De Bruyne kæmist að dómaranum, en það var Belginn ekkert sérlega sáttur með. „Leyfið mér að tala!" öskraði hann.

De Bruyne hafði fengið gult spjald undir lok fyrri hálfleiksins sem hann var greinilega ekki mjög sáttur með.
Sjá einnig:
De Bruyne lofsamaður - Líkt við Scholes og Beckham
Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu í kvöld.
Someone let Kevin de Bruyne talk 😂 pic.twitter.com/IzxmmcMK0D
— manutdxtra (@manutdxtra) October 17, 2017
Athugasemdir