Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. október 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enska knattspyrnusambandið biðst afsökunar
Martin Glenn.
Martin Glenn.
Mynd: Getty Images
Mark Sampson.
Mark Sampson.
Mynd: Getty Images
Martinn Glenn, formaður enska knattspyrnusambandsins, hefur beðið tvo leikmenn enska kvennalandsliðið afsökunar fyrir hönd knattspyrnusambandsins.

Leikmennirnir sem um ræðir í þessu máli eru Drew Spence og Eniola Aluko, en þær leika báðar með kvennaliði Chelsea á Englandi.

Þær sökuðu Mark Simpson, fyrrum landsliðsþjálfara Englands, um kynþáttaníð, en Sampson var rekinn sem landsliðsþjálfari fyrir um mánuði síðan eftir þessar ásakanir.

Báðir leikmennirnir eru dökkir að hörund en um er að ræða tvö mismunandi atvik. Sampson á að hafa spurt Spence hvort hún hefði verið handtekin af lögreglunni.

Aluko á ættir að rekja til Nígeríu og fyrir landsleik árið 2014 voru ættingjar hennar frá Afríkulandinu að koma á leikinn. Þá á Sampson að hafa sagt við hana að þau ættu að passa sig á að koma ekki með Ebólu vírusinn til Englands. Einnig á Sampson að hafa kallað hana Ebola í stað Eniola, sem er hennar rétta fornafn.

Knattspyrnusambandið sendi frá sér yfirlýsingu í gær, en í yfirlýsingunni er vitnað í formanninn Martin Glenn.

„Fyrir hönd knattspyrnusambandsins vil ég biðja Eniola Aluko og Drew Spence afsökunar," sagði Glenn.

„Báðir leikmenn urðu fyrir fordómum frá starfsmanni knattspyrnusambandsins. Það er ekki boðlegt."
Athugasemdir
banner
banner