Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 19. október 2017 23:00
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Sonný Lára: Alltaf að læra eitthvað nýtt
Sonný Lára er bjartsýn fyrir leikina gegn Þýskalandi og Tékklandi
Sonný Lára er bjartsýn fyrir leikina gegn Þýskalandi og Tékklandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við höfum það gott. Fínir æfingavellir, fínt hótel og mjög gott veður,“ sagði markvörðurinn Sonný Lára Þráinsdóttir í samtali við Fótbolta.net í Wiesbaden í gærdag.

„Það er mjög gaman að koma inn aftur. Ég var náttúrulega ekki með í síðasta verkefni þannig að það er ánægjulegt,“ sagði Sonný sem var ekki í síðasta landsliðshóp gegn Færeyjum.

Aðspurð um hvort þjálfararnir væru að leggja inn mikið af nýjum punktum eða vinna áfram með eldri atriði svaraði Sonný:

„Það er eitthvað nýtt. Það er auðvitað misjafnt eftir því hvaða lið maður er að spila við en maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.“

Hún er bjartsýn fyrir komandi verkefnum og telur möguleika Íslands góða.

„Ef við spilum okkar leik og mætum með íslensku hörkuna getur allt gerst. Við höfum engu að tapa og förum all in í þetta verkefni og reynum að berja þær niður.“

Nánar er rætt við Sonný Láru í spilaranum hér að ofan en þar kemur hún meðal annars inn á hvernig hún hefur haldið sér í standi frá því að tímabilinu lauk heima.
Athugasemdir
banner
banner