Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 20. október 2017 09:58
Elvar Geir Magnússon
Felix Örn til Wolves á reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Felix Örn Friðriksson, leikmaður ÍBV og U21 landsliðsins, heldur til Englands á morgun þar sem hann æfir til reynslu hjá Wolverhampton Wanderers.

Úlfarnir sitja í toppsæti ensku Championship-deildarinnar.

Felix er sókndjarfur bakvörður sem er fæddur 1999. Á liðnu tímabili spilaði hann 21 leik í Pepsi-deildinni auk þess að verða bikarmeistari með Eyjamönnum.

Alls hefur hann leikið 40 leiki í deild og bikar fyrir ÍBV.

Hann hefur verið í byrjunarliði U21-landsliðsins í öllum þremur leikjum þess hingað til í undankeppni EM.


Athugasemdir
banner
banner